11. Janúar- 2018

Dagsetning og tími: 11.1.2018 – 15:00
Fundarstaður: Stofa 1
Mættir:
Elfa Birkisdóttir – Skólastjóri
Bjarni Daníel Daníelsson, fulltrú foreldra grunnskóladeildar
Ragnhildur Sævarsdóttir, fulltrúi foreldra leikskóladeildar
Thelma Rún Jóhannsdóttir, fulltrúi nemenda
Hallbera Gunnarsdóttir, fulltrúi starfsmanna grunnskóladeildar
Magndís Huld Sigmarsdóttir, fulltrúi starfsmanna leikskóladeildar
Forföll:
Hörður Bergsteinsson, fulltrúi grenndarsamfélagsins
Fundargerð:

  1. Fjárhagsáætlun
    Elfa kynnir fjárhagsáætlun sem að sveitarstjórn er búin að samþykkja með smávægilegum
    breytingum.
  2. Bókasafn
    Bókasafnið er hætt að koma til okkar einu sinni í viku. Það þarf að skoða nýjan samning
    varðandi þetta.
  3. Smíðakennsla
    Ákveðið hefur verið að hætta smíðakennslu þar til að viðunandi húsnæði hefur fengist. Fagið
    breytist úr smíði í „hönnun með áherslu á nýsköpun og nýsköpunarmennt“.
  4. Aðstaða í HÍ
    Bjarni fór lauslega yfir fund sem að hann átti með manni frá HÍ til að bæta aðstöðuna sem við
    erum að leigja fyrir list og verkgreinar í háskólanum.
  5. Húsnæðismál
    Ástand húsnæðismála er óviðunandi og skólaráð væntir þess að unnið verði að lausn að
    húsnæðisvanda sem fyrst svo hægt sé að skipuleggja næsta skólaár.
    Fundargerð ritaði: Hallbera Gunnarsdóttir
    Næsti fundur er boðaður samkvæmt áætlun af skólastjóra