Símalaus sunnudagur

UPPLIFUM ÆVINTÝRIN SAMAN

Barnaheill – Save the Children á Íslandi vilja hvetja alla til að taka þátt í símalausum
sunnudegi þann 30. október næstkomandi. Áskorunin felst í því að leggja frá sér
símann og önnur snjalltæki í 12 klukkustundir, frá kl. 9–21. Yfirskrift átaksins
er ,,Upplifum ævintýrin saman” og er markmiðið að vekja foreldra og annað fullorðið
fólk til umhugsunar um áhrif snjalltækja á samveru og nánd innan fjölskyldna.
Snjallsímar og önnur snjalltæki eru skemmtileg og gagnleg tæki sem hafa umbylt því
hvernig við eigum í samskiptum, nálgumst upplýsingar og verjum tíma okkar. Í mörgum
tilvikum eru áhrif tækninnar jákvæð og sniðug en einnig hefur verið bent á skuggahliðar
hennar. Óhófleg notkun á snjalltækjum getur meðal annars haft áhrif á samskipti innan
fjölskyldunnar – samskiptin og nándin minnka því það er eitthvað sem stelur athyglinni.
Símalaus sunnudagur er nú haldinn í fjórða sinn og hefur dagurinn fengið töluverð
viðbrögð undanfarin ár. Barnaheill hvetja skóla til þess að vekja athygli á deginum og
þannig efla samveru foreldra og barna á þessum degi.
Hægt er að skrá sig til leiks á www.simalaus.is og taka áskorun Barnaheilla. Allir
þátttakendur eiga möguleika á að vinna fjölbreytta og fjölskylduvæna útdráttarvinninga
og fá auk þess nokkur góð ráð send í tölvupósti laugardaginn 29. október