Í gær fengu 4.-7. bekkur heimsókn frá Listaháskóla Íslands. Okkur var boðið að vera með í þátttökulistaverki sem sýnt verður á Listasafni Árnesinga 26. janúar – 28. Apríl 2015. Ásthildur Björt Jónsdóttir lektor í Listkennsludeildinni í LHÍ mætti ásamt tveimur kennaranemum en hún er að vinna að þessu verkefni í tengslum við doktorsnám sitt.
Verkið heitir Okkar náttúra- mínar óskir fyrir framtíðina. . Hver og einn nemandi fékk það verkefni að gera eina eða fleiri blaðsíður í verkið (bókina) en bókin mun verða um 400 bls. Bókverkið verður svo áfram í þróun í listasafninu þar sem gestum gefst færi á að skapa bls. meðan á sýningunni stendur. Þetta verkefni kemur vel heim við samfélagsfræðikennsluna, en þar höfum við m.a. verið að fjalla um náttúruvernd.