Snemmtæk íhlutun í leikskóla með áherslu á málþroska og læsi.

Skemmtilegur og fróðlegur starfsdagur er að baki í leikskólum Bláskógabyggðar í dag, en dagurinn markar lokin á þróunarverkefninu „Snemmtæk íhlutun í leikskóla með áherslu á málþroska og læsi“. Verkefnið er á vegum Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu og var unnið í samstarfi við skólaþjónustu Árnesþings og hina leikskólana í uppsveitum Árnessýslu.

Meginmarkmið verkefnisins er að valdefla starfsfólk leikskóla í að beita aðferðum snemmtækrar íhlutunar á sviði málþroska og læsis.

Sem hluti af verkefninu unnu þátttakendur að gerð handbókar sem rammar inn alla helstu þætti þess og verður mikilvægt leiðbeiningarefni fyrir starfsfólk leikskólanna áfram.

Dagskráin í dag var fjölbreytt og lærdómsrík. Fyrir hádegi tóku starfsmenn leikskólanna þátt í vinnustofum undir umsjón talmeinafræðinga þar sem þeir fengu góðar leiðbeiningar um hvernig nýta má málörvunarefnið sem leikskólarnir fengu að gjöf í upphafi verkefnisins. Vinnustofurnar voru afar fræðandi og gáfu starfsfólki tækifæri til að efla þekkingu sína og færni til að styðja við málþroska barna í daglegu starfi.

Eftir hádegi var haldið lokahóf þar sem allir leikskólar kynntu hluti úr handbókum sínum. Það var frábært tækifæri til að deila reynslu og læra hver af öðrum og gleðilegt að sjá alla þá vinnu og þekkingu sem þróaðist í gegnum verkefnið.

Við í leikskólum Bláskógabyggðar erum mjög þakklát fyrir að hafa fengið að taka þátt í þessu verkefni. Lærdómurinn var mikill og nú höfum við fleiri verkfæri og þekkingu til að veita börnum bestu mögulegu tækifærin til málþroska og læsisnáms í leikskólunum okkar.