Í dag er skreytingadagur hjá okkur í Reykholti. Í morgun skreyttu nemendur kennslustofur og unnu að föndurverkefnum sem tengjast jólunum. Ýmsir fallegir munir litu dagsins ljós sem prýði er af. Jólalegt og fallegt er því í kennslustofum skólans.
Klukkan eitt var nemendum boðið á bíóssýningu í Aratungu. Þar mættu þeir með popp eða snakk og drykk að heiman. Mikil eftirvænting var í loftinu.
Hefð er fyrir því að foreldrar nemenda í 4. bekk útbúi kakó og beri smákökur á borð fyrir nemendur og starfsfólk. Ekki varð undantekning á því þetta skóla árið. Þrír vaskir foreldra mættu og sinntu þessi hlutverki af prýði.
Hér eru nokkrar myndir sem teknar voru í dag.