Fimmtudaginn 21. nóvember býðst nemendum 9. og 10. bekkjar að taka þátt í ML deginum á Laugarvatni. Farið verður frá Reykholti kl. 14:30 og áætluð heimferð er um kl. 20:45.
Nemendur fá kynningu á skólanum, taka þátt í kóræfingu, borða og sjá söngvakeppni skólans, Blítt og létt. Nemendafélag menntaskólans verður með sjoppu á söngvakeppninni.
Sækja verður þá nemendur sem fara í ferðina.