Í gær var grunnskólamót HSK haldið í íþróttahúsinu í Reykholti. Mótið er ætlað nemendum í 5. – 10. bekk. Keppendur voru frá: Bláskógaskóla, Flóaskóla, Hvolsskóla og Laugalandsskóla. Á myndinni má sjá fríska nemendur sem kepptu fyrir hönd Bláskógaskóla.