My CMS
Sími: 480 3020
blaskogaskoli@blaskogaskoli.is
  • Bláskógabyggð
  • Vefpóstur
  • Mentor

Category Archives: Fréttir grunnskóladeildar

Skóli hættir kl: 11:30

Posted on 13. January 2020 by Guðný Rósa Magnúsdóttir Posted in Fréttir grunnskóladeildar

Í ljósi appelsínugulrar viðvörunar, yfirvofandi hvassviðris, hálku og mikils skafrenningsfóðurs keyrum við nemendur heim kl. 11:30 í dag mánudag 13. janúar. Frístund fellur niður. Á morgun þriðjudag er starfsdagur kennara og foreldraviðtöl á miðvikudaginn

Skóli fellur niður

Posted on 12. February 2018 by Guðný Rósa Magnúsdóttir Posted in Fréttir grunnskóladeildar

Skóli fellur niður í dag 12. febrúar vegna ófærðar

Námsmat og foreldradagur

Posted on 10. January 2017 by Elfa Birkisdóttir Posted in Fréttir grunnskóladeildar

Á föstudaginn 13. janúar munu nemendur fara með námsmat fyrri annar skólaársins 2016-2017 heim. Á þriðjudaginn 17. verður síðan foreldradagur þar sem nemendur og foreldrar koma í viðtal í skólann við umsjónarkennarateymi hvers stigs. Þann daginn er ekki skóli og ekki frístundarskóli. Foreldarar eru hvattir til að yfirfara námsmat með nemendum fyrir viðtal.

Ef foreldrar hafa sérstakar óskir um viðtalstíma er möguleiki að óska eftir því fram að fimmtudag. Foreldrar eru beðnir um að hafa samband við umsjónakennara vegna viðtalsóska.

Námsmati er þannig háttað:

Nemendur á yngsta stigi (1-4. bekkur) fá leiðbeinandi umsagnir um námslega stöðu.

Nemendur á miðstigi (5-7. bekkur) fá námsmat í bókstafakerfi.

Nemendur á unglingastigi (8-10. bekkur) fá námsmat í bókstafakerfi.

Bókstafakerfið byggir á 6 bókstöfum sem lýsa stöðu nemanda í þeirri námsgrein seum um ræðir. A, B+, B, C+, C og D. Ef nemenandi hefur einstaklingsnámskrá er einkunn í bókstaf  stjörnu­merkt­. Viðmið námsgreina hefur hver kennari útbúið og kynnt nemendum í upphafi annar.

Einkunnaskali:

A Framúrskarandi hæfni, yfirburða kunnátta, nær ríflega öllum viðmiðum.

B + Stendur sig mjög vel, nær ríflega öllum viðmiðunum

B Stendur sig vel, nær öllum viðmiðunum

C + Stendur sig vel, nær nánast öllum viðmiðunum

C Stendur sig en nær ekki öllum viðmiðunum

D Stendur sig en nær ekki viðmiðunum, er með einstaklingsnámskrá

Morgunmatur í tilefni konudagsins

Posted on 18. February 2016 by Elfa Birkisdóttir Posted in Fréttir grunnskóladeildar

Kæru mæður, ömmur, frænkur og systur barna í leik og grunnskóla Bláskógaskóla Laugarvatni!

Í tilefni af konudegi nk. sunnudag langar okkur að bjóða ykkur að koma og snæða með okkur morgunmat föstudaginn 19. febrúar á milli 8:00 og 9:00!

Hlökkum til að sjá ykkur!

Gleðileg jól

Posted on 18. December 2015 by Elfa Birkisdóttir Posted in Fréttir grunnskóladeildar

Starfsfólk Bláskógaskóla Laugarvatni sendir hlýjar jóla og áramótakveðjur. Þökkum gott samstarf á árinu sem er að líða og hlökkum til að takast á við ný verkefni á nýju ári.

Fyrir hönd starfsmanna,

Elfa, skólastjóri.

© 2017 Bláskógaskóli