Bingó!
Fimmtudaginn 14. nóvember verður bingó í Aratungu. Í boði verða frábærir vinningar sem krakkarnir í 10 bekk hafa safnað saman. Húsið opnar klukkan 19:30 og bingóið sjálft byrjar klukkan 20:00 og spjaldið kostar 500 kr. 3 spjöld kosta 1200 kr og 5 spjöld kosta 2000 kr
Sjoppa verður á staðnum ásamt tombólu – 100 kr miðinn
Vonum að sem flestir mæti!
– 10. bekkur Bláskógaskóla.