Skólaráð

Skólaráð

Skólaráð er starfar sameiginlega fyrir leik og grunnskóladeild samkvæmt heimild í 6. Gr. Reglugerðar um Skólaráð við Grunnskóla nr. 1157 frá 2008 og samþykkt þar um frá Sveitarstjórn Bláskógabyggðar.

Reglugerð um skólaráð má sjá hér

Góð handbók um skólaráð, skipulag þess og hlutverk má finna hér.

Fulltrúar í skólaráði skólaárið 2020-2021

  • Íris Anna Steinarrsdóttir – Skólastjóri
  • Smári Stefánsson, fulltrú foreldra grunnskóladeildar – tók sæti vorið 2019
  • Ragnheiður Bjarnadóttir fulltrúi foreldra leikskóladeildar – tók sæti haustið 2022
  • Borghildur Guðmundsdóttir, fulltrúi starfsmanna leikskóladeildar – tók sæti haustið 2023
  • Guðni Sighvatsson, fulltrúi starfsmanna grunnskóladeildar – tók sæti haustið 2019

Starfsreglur:

  • Skólaráð starfar samkvæmt ákvæðum grunnskólalaga og nánari ákvæðum reglugerðar þar um. Ráðið tekur þátt í stefnumörkun skólans og mótun sérkenna hans í samræmi við stefnu sveitarfélagsins þar um.
  • Í ráðinu sitja fulltrúar nemenda, foreldra, kennara, starfsmanna og grenndarsamfélagsins.
  • Fulltrúar skólaráðs skulu kjörnir á lýðræðislegan hátt af sínu baklandi utan fulltrúa grenndarsamfélagsins sem að er skipaður af ráðinu sjálfu. Miðað skal við að ráðsmenn sitji að jafnaði ekki skemur en 2 ár í senn.
  • Skólaráð setur sér stafsáætlun fyrir hvert skólaár og ákveður m.a. tíðni funda, boðun og undirbúning.
  • Skólaráð heldur einn opinn fund á hverju skólaári þar sem að farið er yfir verkefni ársins ásamt umræðum um sérstök þemu eins og við á hverju sinni.
  • Skólaráð heldur fundargerðir sem eru birtar á vef skólans.
  • Skólaráð fjallar ekki um málefni einstakra nemenda, foreldra eða starfsmanna.
  • Fulltrúar nemenda skulu ávalt eiga þess kost að taka þátt í starfi ráðsins og skal ráðið haga fundum þannig að slíkt sé hægt.
            • Samþykkt á fundi skólráðs þann 9.4.2019

Boðun funda:

  • Skólastjóri boðar fundi skólaráðs með viku fyrirvara samkvæmt fyrirliggjandi fundaráætlun.
  • Skólastjóri boðar til aukafunda skólaráðs eftir þörfum með viku fyrirvara.
  • Skólastjóri safnar og sendir fundargögn með fundarboði sé þess kostur en ekki síðar en tveimur dögum fyrir fund.
            • Samþykkt á fundi skólaráðs þann 9.4.2019

Fundaráætlun Skólaráðs

September – Starfsáætlun og skólanámskrá tekin fyrir.

Apríl –  Niðurstöður skólapúlsins og fjárhagsáætlun.

Maí Opin fundur – Umbótaáætlun og niðurstöður ársins kynntar ásamt vinnu að markmiðum næsta árs. Opinn fundur.

Auka fundir eru boðaðir eftir þörfum.